Húsnæðisfélagið Búmenn hfs - Forsíða ForsíðaSpurningar og svörEfnisyfirlitHafðu samband

Klettháls 1 - 110 Reykjavík - Sími 552- 5644

[ Forsíða ] Efnisyfirlit ] Eldri auglýsingar ] Lausar íbúðir ]
Fréttir ] Um Búmenn ] Íbúðir Búmanna ] Skráning í Búmenn ] Hafðu samband ] Spurningar og svör ] Skjöl og útgefið efni ]

Velkominn á vefsíðu Búmanna!            

Búmenn auglýsa næst í Fréttablaðinu 7. maí

Húsnæðissamvinnufélagið Búmenn er góður kostur í húsnæðismálum sem byggir á samfélagslegum grunni

Félagið var stofnað með það að markmiði að byggja og reka búseturéttaríbúðir fyrir félagsmenn sína. Félagssvæðið nær til landsins alls og hefur félagið lokið byggingum íbúða í 13 sveitarfélögum víðsvegar um land. Félagið er opið öllum, bæði einstaklingum og samtökum. Sérstakt félagsnúmer veitir félagsmanni, sem náð hefur 50 ára aldri, rétt til kaupa á búmannaíbúð án tillits til núverandi búsetu. Búmenn leggja áherslu á vandaðar fullbúnar íbúðir á hagkvæmu verði. Búseturéttur og mánaðargjöld eru á kostnaðarverði. Lögð er áhersla á gott aðgengi þannig að fólk geti búið í íbúðunum eins lengi og kostur er. Lögð er áhersla á hentugt skipulag í nálægð við þjónustu. Þar sem Búmenn sameinast um búsetu skapast rólegt umhverfi.  

Skrifstofa Búmanna:  

Skrifstofa Búmanna er staðsett á Klettháls 1, 110 Reykjavík. Síminn er 552 5644  og Faxnúmer 552 5944. Skrifstofan er opin frá kl. 09 – 15 alla virka daga.   Sjá kort

  

Íbúðir Búmanna:

Nú hafa Búmenn tekið 540 íbúðir í notkun í 13 sveitarfélögum.

Akranes (45) Akureyri (42)  Bessastaðarhreppi (18)  Garði í Gerðahreppi (44)  Grindavík (30)  Hveragerði (42) Höfn í Hornafirði (11)  Kirkjubæjarklaustri (4)  Kópavogi (39)  Reykjavík (179) Reykjanesbæ (41)  Sandgerði (17)  Vogum (29)

Aðalfundur Búmanna júní 2011:

Á aðalfundi Búmanna sem haldinn var 9. júní 2011 á Grand Hótel Reykjavík var Guðrún Jónsdóttir, arkitekt endurkjörin formaður félagsins. Sigurveig Sigurðardóttir og Úlfur Sigurmundsson gáfu kost á sér áfram og voru þau kjörin til tveggja ára.   Fyrir í aðalstjórn voru  Steinunn Finnbogadóttir og Ásgeir Hjálmarsson sem kosin voru til tveggja ára árið 2010. Varamenn voru kosin Eyrún Eiríksdóttir, Helgi Baldursson og Þorsteinn Ragnarsson.

Skýrsla stjórnar fyrir liðið starfsár er undir flipanum "fréttir" ásamt skýrslu viðhaldsráðs Búmanna og breytingu á samþykktum félagsins.

Vextir - uppfærslur:

Skráning í félagið og fréttabréf:

Hér getur þú skráð þig í félagsskap Búmanna með því að fylla út eftirfarandi skráningarform >>> Skráning <<<

Þú getur sótt nýjasta fréttabréf Búmanna með því að smella hér

(Setja síðu Búmanna í bókarmerkið þitt)

 Hit Counter