Kópavogur Blásalir 24, íb. 402

Blásalir 24, íb. 402


Category: .
Description

Til sölu er búseturéttur að Blásölum 24 í Kópavogi. Um er að ræða fallega, bjarta og rúmgóða 3ja herbergja, 92 fm íbúð á 4.hæð í lyftuhúsi byggðu árið 2001. Snyrtileg íbúð með miklu útsýni. Stæði í bílageymslu fylgir ekki.

Íbúðin skiptist í forstofu, þvottahús, baðherbergi, tvö svefnherbergi, stofu og eldhús. Sólargluggatjöld eru í stofu. Íbúðinni fylgir þvottavél, uppþvottavél og ísskápur, öll veggljós og loftkastarar. Svalir eru yfirbyggðar og á þeim er hitatæki.

Ásett verð búseturéttarins er kr.27.000.000 og mánaðarlegt búsetugjald miðað við 1.september er kr.203.450.

Innifalið í mánaðarlegu búsetugjaldi er afborgun skuldabréfa, fasteigna- og holræsagjöld, tryggingar, rekstur húsfélags, viðhaldssjóður og þjónustugjald.

Þeir sem hafa áhuga á að skoða eignina og/eða gera tilboð í búseturéttinn, vinsamlegast hafið samband við skrifstofu Búmanna í síma 552-5644 eða í gegnum netfangið [email protected]

Verð: 27.000.000
Stærð: 92 fm
Tegund íbúðar: Fjölbýli
Gata: Blásalir 24
Póstnúmer: 201
Fastanúmer: 224-2402
Tilboðsfrestur: 18. september n.k. kl. 12.00