Til sölu er búseturéttur að Ferjuvaði 9 í Norðlingaholti. Um er að ræða mjög fína 2 herbergja íbúð á 1 hæð í fjölbýli. Nýlegt parket er á íbúðinni, nýr handklæðaskápur á baðherbergi og upphækkun fyrir þvottavél og þurrkara í þvottahúsi. Stæði í bílageymslu fylgir.
Ásett verð búseturéttarins er kr.19.000.000 og mánaðarlegt búsetugjald miðað við 1.apríl er kr.189.498.
Innifalið í mánaðarlegu búsetugjaldi er afborgun skuldabréfa, fasteigna- og holræsagjöld, tryggingar, rekstur húsfélags, viðhaldssjóður og þjónustugjald.
Þeir sem hafa áhuga á að skoða eignina og/eða gera tilboð í búseturéttinn, vinsamlegast hafið samband við skrifstofu Búmanna í síma 552-5644 eða í gegnum netfangið [email protected]
Verð: 19.000.000
Stærð: 73,2 fm
Gata: Ferjuvað 9, 102
Póstnúmer: 110 Reykjavík
Byggingarár: 2007
Bílageymsla: Já
Fastanúmer: 230-2530
Tilboðsfrestur: þriðjudagurinn 11.4 nk, kl.12.00