Reykjavík Hólmvað 6c

Hólmvað 6c


Category: .
Description

Til sölu er búseturéttur að Hólmvaði 6 c, í Norðlingaholti. Um er að ræða 2 herbergja, 81 fm raðhús á einni hæð með góðu aðgengi fyrir fatlaða. Bílastæði er í bílkjallara. Þegar komið er að húsinu er farið inn á pall sem snýr í hásuður. Hann er aðgirtur. Komið er inn í forstofu með fataskáp. Dyr er á forstofunni þannig að hægt er að loka henni. Inn af forstofu er gengið inn í rými þar sem stofa og borðstofa eru til vinstri og opið eldhús með innréttingum er beint á móti. Til hægri er gengið inn í lítinn gang með stóru svefnherbergi með fataskápum, baði og þvottahúsi þar sem inn af er geymsla. Parket er á gólfum. Íbúðin er laus 1.desember nk.

Ásett verð búseturéttarins er kr.12.200.000 og mánaðarlegt búsetugjald miðað við 1.nóvember er kr.224.070.

Innifalið í mánaðarlegu búsetugjaldi er afborgun skuldabréfa, fasteigna- og holræsagjöld, tryggingar, rekstur húsfélags, viðhaldssjóður og þjónustugjald. Þeir sem hafa áhuga á að skoða eignina og/eða gera tilboð í búseturéttinn, vinsamlegast hafið samband við skrifstofu Búmanna í síma 552-5644 eða í gegnum netfangið [email protected]

Verð: 12.200.000
Stærð: 81 fm
Gata: Hólmvað 6 c
Póstnúmer: 110 Reykjavík
Byggingarár: 2007
Bílageymsla:
Fastanúmer: 228-8844