Til sölu er búseturéttur að Prestastíg 9 í Grafarholti. Falleg, björt og rúmgóð 94 fm íbúð á 2.hæð í lyftuhúsi, byggðu árið 2002. Snyrtileg íbúð sem hefur verið mjög vel við haldið. Íbúðin skiptist í forstofu, stofu, eldhús,tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymsla. Svalir eru lokaðar og þar er hiti í gólfi. Stæði í bílakjallara fylgir og inn af því er önnur geymsla.
Ásett verð búseturéttarins er kr.32.000.000 og mánaðarlegt búsetugjald miðað við 1.janúar er kr.214.447.
Innifalið í mánaðarlegu búsetugjaldi er afborgun skuldabréfa, fasteigna- og holræsagjöld, tryggingar, rekstur húsfélags, viðhaldssjóður og þjónustugjald.
Þeir sem hafa áhuga á að skoða eignina og/eða gera tilboð í búseturéttinn, vinsamlegast hafið samband við skrifstofu Búmanna í síma 552-5644 eða í gegnum netfangið [email protected]
Verð: 32.000.000
Stærð: 94 fm
Gata: Prestastígur 9, 201
Póstnúmer: 113 Reykjavík
Byggingarár: 2002
Fastanúmer: 226-0462
Tilboðsfrestur: þriðjudagur 21.janúar kl.12.00