Reykjanesbær Stekkjargata 59

Stekkjargata 59


Category: .
Description

Til sölu er búseturéttur í Stekkjargötu 59 í Reykjanesbæ. Um er að ræða fallegt og rúmgott 134,7 fm parhús byggt árið 2006, snyrtileg eign með fallegu sjávarútsýni. Húsið skiptist í forstofu, eldhús, stofu, sólstofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús. Eldhús og annað svefnherbergið hefur verið sameinað og sett ný gólfefni, baðherbergi er mikið endurnýjað og nýjar flísar eru á forstofu og þvottahúsi. Aukaherbergi (tómstundarrými) og geymsluloft eru í innri hluta bílskúrs. Veglegur sólpallur með heitum potti ásamt geymsluhorni fyrir kerru sjávarmegin, hellulagt plan við hlið hússins og nýr pallur að framanverðu. Hleðslustöð fyrir rafbíla í bílskúr.

Afhending 1 maí nk.

Ásett verð búseturéttarins er kr. 39.800.000 og mánaðarlegt búsetugjald miðað við 1 mars er kr.281.920.

Innifalið í mánaðarlegu búsetugjaldi er afborgun skuldabréfa, fasteigna- og holræsagjöld, tryggingar, rekstur húsfélags, viðhaldssjóður og þjónustugjald.

Þeir sem hafa áhuga á að skoða eignina og/eða gera tilboð í búseturéttinn, vinsamlegast hafið samband við skrifstofu Búmanna í síma 552-5644 eða í gegnum netfangið [email protected]

Verð: 39.800.000
Stærð: 134,7 fm
Gata: Stekkjargata 59
Póstnúmer: 260 Reykjanesbær
Fastanúmer: 228-6493