Til sölu er búseturéttur í Akurgerði 25 í Vogum. Mjög fín 46,2 fm stúdióíbúð á 1 hæð í húsi byggðu árið 2007. Snyrtileg eign sem skiptist í forstofu, geymslu, eldhús, baðherbergi, stofu og herbergi í einu rými. Eignin er laus nú þegar.
Ásett verð búseturéttarins er kr. 5.500.000 og mánaðarlegt búsetugjald miðað við 1.júní er kr.134.259.
Innifalið í mánaðarlegu búsetugjaldi er afborgun skuldabréfa, fasteigna- og holræsagjöld, tryggingar, rekstur húsfélags, viðhaldssjóður og þjónustugjald.
Þeir sem hafa áhuga á að skoða eignina og/eða gera tilboð í búseturéttinn, vinsamlegast hafið samband við skrifstofu Búmanna í síma 552-5644 eða í gegnum netfangið [email protected]
Verð: 5.500.000
Stærð: 46,2 fm
Gata: Akurgerði 25
Póstnúmer: 190 Vogum
Fastanúmer: 230-2560
Tilboðsfrestur: mánudagur 6.júlí 2026, kl.12.00