Til sölu er búseturéttur í Stekkjargötu 9 í Reykjanesbæ. Bjart, fallegt og rúmgott 135,3 fm parhús, byggt árið 2006, mjög snyrtileg eign. Húsið skiptist í forstofu, eldhús, stofu, sólstofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og bílskúr. Aukaherbergi hefur verið útbúið innaf bílskúrnum.
Eignin er laus.
Ásett verð búseturéttarins er kr. 32.000.000 og mánaðarlegt búsetugjald miðað við 1.ágúst er kr.283.055.
Innifalið í mánaðarlegu búsetugjaldi er afborgun skuldabréfa, fasteigna- og holræsagjöld, tryggingar, rekstur húsfélags, viðhaldssjóður og þjónustugjald.
Þeir sem hafa áhuga á að skoða eignina og/eða gera tilboð í búseturéttinn, vinsamlegast hafið samband við skrifstofu Búmanna í síma 552-5644 eða í gegnum netfangið [email protected]

Verð: 32.000.000
Stærð: 135,3 fm
Gata: Stekkjargata 9
Póstnúmer: 260 Reykjanesbær
Fastanúmer: 228-6355

























