Til sölu er búseturéttur í Kríulandi 12 í Garði. Um er að ræða fallegt og rúmgott 120,3 fm parhús byggt árið 2001, snyrtileg og björt eign. Íbúðin 89,7 fm skiptist í forstofu, eldhús, stofu, borðstofu, tvö herbergi, baðherbergi og þvottahús. Bílskúr er 30,6 fm. Húsið er með stórum afgirtum garði, pláss er fyrir hjólhýsi eða húsbíl, grillskúr, skúr og stór pallur. Afhending eftir samkomulagi.
Ásett verð búseturéttarins er kr. 25.000.000 og mánaðarlegt búsetugjald miðað við 1.júní er kr.206.799.
Innifalið í mánaðarlegu búsetugjaldi er afborgun skuldabréfa, fasteigna- og holræsagjöld, tryggingar, viðhaldssjóður og þjónustugjald.
Þeir sem hafa áhuga á að skoða eignina og/eða gera tilboð í búseturéttinn, vinsamlegast hafið samband við skrifstofu Búmanna í síma 552-5644 eða í gegnum netfangið [email protected]
Verð: 25.000.000
Stærð: 120,3 fm
Gata: Kríuland 12
Póstnúmer: 250 Suðurnesjabær
Fastanúmer: 225-4497
Tilboðsfrestur: föstudagur 19.júní 2026, kl.12.00