Til sölu er búseturéttur í Ferjuvaði 9 í Norðlingaholti. Falleg, björt og rúmgóð 73 fm íbúð á 2.hæð í lyftuhúsi byggðu árið 2007. Íbúðin skiptist í forstofu með góðum skáp, rúmgóða stofu, eldhús, eitt svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús. Svalir eru yfirbyggðar og stæði í bílakjallara fylgir.
Íbúðin er laus.
Ásett verð búseturéttarins er kr. 28.000.000 og mánaðarlegt búsetugjald miðað við 1.ágúst er kr.230.848.
Innifalið í mánaðarlegu búsetugjaldi er afborgun skuldabréfa, fasteigna- og holræsagjöld, tryggingar, rekstur húsfélags, viðhaldssjóður og þjónustugjald.
Þeir sem hafa áhuga á að skoða eignina og/eða gera tilboð í búseturéttinn, vinsamlegast hafið samband við skrifstofu Búmanna í síma 552-5644 eða í gegnum netfangið [email protected]

Verð: 28.000.000
Stærð: 73 fm
Gata: Ferjuvað 9
Póstnúmer: 110 Reykjavík
Fastanúmer: 230-2533
Tilboðsfrestur: föstudagur 28.ágúst 2026, kl.12.00











