Til sölu er búseturéttur í Kríulandi 12 í Garði. Um er að ræða fallegt og rúmgott 120,3 fm parhús byggt árið 2001, snyrtileg og björt eign. Íbúðin 89,7 fm skiptist í forstofu, eldhús, stofu, borðstofu, tvö herbergi, baðherbergi og þvottahús. Bílskúr er 30,6 fm.
Húsið er allt nýmálað og nýtt parket á gólfum. Búið er að skipta um rafmagnstengla og rofa í öllu húsinu og gengið hefur verið frá þriggjafasa rafmagnstenginu fyrir bílahleðslustöð. Á lóðinni er 12 fm upphitaður skúr sem er einnig nýmálaður og parketlagður. Grillkofi er á lóðinni.
Afhending er 1.nóvember nk eða samkomulag.
Ásett verð búseturéttarins er kr. 25.000.000 og mánaðarlegt búsetugjald miðað við 1.október er kr.209.512.
Innifalið í mánaðarlegu búsetugjaldi er afborgun skuldabréfa, fasteigna- og holræsagjöld, tryggingar, viðhaldssjóður og þjónustugjald.
Þeir sem hafa áhuga á að skoða eignina og/eða gera tilboð í búseturéttinn, vinsamlegast hafið samband við skrifstofu Búmanna í síma 552-5644 eða í gegnum netfangið [email protected]

Verð: 25.000.000
Stærð: 120,3 fm
Gata: Kríuland 12
Póstnúmer: 250 Suðurnesjabær
Fastanúmer: 225-4497
Tilboðsfrestur: þriðjudagur 27.október 2026, kl.12.00


























