Reykjavík Prestastígur 11, íbúð 302

Prestastígur 11, íbúð 302


Category: .
Description

Til sölu er búseturéttur á Prestastíg 11 í Grafarholti. Falleg, björt og rúmgóð 81,5 fm íbúð á 3.hæð í lyftuhúsi byggðu árið 2002. Snyrtileg íbúð með fallegu útsýni. Íbúðin skiptist í forstofu, stofu, eldhús, svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymslu innan íbúðar. Einnig er sérgeymsla í kjallara. Nýlegt parket er á allri íbúðinni, búið er að flísaleggja baðherbergi og gera walk-in sturtu. Svalir eru yfirbyggðar og flísalagðar og þar hefur verið komið fyrir tenglum.

Afhending er 1.desember nk eða samkomulag.

Ásett verð búseturéttarins er kr.27.000.000 og mánaðarlegt búsetugjald miðað við 1.nóvember er kr.166.159.

Innifalið í mánaðarlegu búsetugjaldi er afborgun skuldabréfa, fasteigna- og holræsagjöld, tryggingar, hússjóður, viðhaldssjóður og þjónustugjald.

Þeir sem hafa áhuga á að skoða eignina og/eða gera tilboð í búseturéttinn, vinsamlegast hafið samband við skrifstofu Búmanna í síma 552-5644 eða í gegnum netfangið [email protected]

Verð: 27.000.000
Stærð: 81,5 fm
Gata: Prestastígur 11
Póstnúmer: 113 Reykjavík
Fastanúmer: 226-0487
Tilboðsfrestur: Mánudagur 23.nóvember 2026, kl.12.00