Í sól og sumaryl

Að gefnu tilefni……….í sól og sumaryl.

Nú um stundir er það vaxandi að fólk bregður sér til heitari landa til þess að njóta og hafa gaman til lengri og skemmri tíma, við viljum benda á að það þarf að huga að íbúðunum á þessum tíma, það er allra veðra von eins getur ýmislegt  komið upp á eins og þekkt er. t.d.

  • Leki frá gluggum.
  • Lagnakerfi hússins.
  • Hitinn fer af.
  • Rafkerfi slær út.
  • Utanaðkomandi orsakir

Því viljum við benda okkar fólki á að hafa vaðið fyrir neðan sig og tryggja eftirlit með húsunum  / íbúðunum og ganga þannig frá að það sé tryggt eftirlit með eignunum  allan tímann sem þau eru fjarverandi.

Minnum á netfang Búmanna sem aldrei sefur í þessu samhengi þ.e. [email protected]

Gangi ykkur vel og hafið það sem allra best nær og fjær.

 

Búmenn.