Vogar Akurgerði 25, íb.109

Akurgerði 25, íb.109


Category: .
Description

Til sölu er búseturéttur í Akurgerði 25 í Vogum. Mjög fín 46,2 fm stúdióíbúð á 1 hæð í húsi byggðu árið 2007. Snyrtileg eign sem skiptist í forstofu, geymslu, eldhús, baðherbergi, stofu og herbergi í einu rými.

Eignin er laus nú þegar.

Ásett verð búseturéttarins er kr. 10.000.000 og mánaðarlegt búsetugjald miðað við 1.apríl er kr.134.890.

Innifalið í mánaðarlegu búsetugjaldi er afborgun skuldabréfa, fasteigna- og holræsagjöld, tryggingar, rekstur húsfélags, viðhaldssjóður og þjónustugjald.

Þeir sem hafa áhuga á að skoða eignina og/eða gera tilboð í búseturéttinn, vinsamlegast hafið samband við skrifstofu Búmanna í síma 552-5644 eða í gegnum netfangið [email protected]

Verð: 10.000.000
Stærð: 46,2 fm
Gata: Akurgerði 25
Póstnúmer: 190 Vogum
Fastanúmer: 230-2560