Til sölu er búseturéttur í Blásölum 24 í Kópavogi. Falleg, rúmgóð og vel umgengin 78 fm íbúð á 2 hæð í lyftuhúsi byggðu árið 2001. Íbúðin skiptist í forstofu með góðum skápum, stofu, eldhús, svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús.
Eignin er laus 1.okt.
Ásett verð búseturéttarins er kr.24.000.000 og mánaðarlegt búsetugjald miðað við 1 september er kr.200.233.
Innifalið í mánaðarlegu búsetugjaldi er afborgun skuldabréfa, fasteigna- og holræsagjöld, tryggingar, rekstur húsfélags, viðhaldssjóður og þjónustugjald.
Þeir sem hafa áhuga á að skoða eignina og/eða gera tilboð í búseturéttinn, vinsamlegast hafið samband við skrifstofu Búmanna í síma 552-5644 eða í gegnum netfangið [email protected]
Verð: 24.000.000
Stærð: 78 fm
Gata: Blásalir 24
Póstnúmer: 201 Kópavogur
Fastanúmer: 224-2395
Tilboðsfrestur: 29. september nk, kl.12.00