Til sölu er búseturéttur að Blásölum 24 í Kópavogi. Falleg björt og rúmgóð 98 fm íbúð á 5.hæð í lyftuhúsi byggðu árið 2001. Snyrtileg íbúð með fallegu útsýni og svalalokun. Íbúðin skiptis í forstofu með góðum skápum, stofu, eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús. Stæði í bílakjallara fylgir.
Afhendingardagur er 1.maí nk.
Ásett verð búseturéttarins er kr.33.950.000 og mánaðarlegt búsetugjald miðað við 1.júní er kr.222.076.
Innifalið í mánaðarlegu búsetugjaldi er afborgun skuldabréfa, fasteigna- og holræsagjöld, tryggingar, rekstur húsfélags, viðhaldssjóður og þjónustugjald.
Þeir sem hafa áhuga á að skoða eignina og/eða gera tilboð í búseturéttinn, vinsamlegast hafið samband við skrifstofu Búmanna í síma 552-5644 eða í gegnum netfangið [email protected]
Verð: 33.950.000
Stærð: 98 fm
Gata: Blásalir 24
Póstnúmer: 201 Kópavogur
Fastanúmer: 224-2405