Reykjavík Grænlandsleið 39 eh

Grænlandsleið 39 eh


Category: .
Description

Til sölu er búseturéttur í Grænlandsleið 39 í Grafarholti. Falleg björt og rúmgóð 90 fm íbúð á efri hæð í húsi byggðu árið 2003. Íbúðin skiptist í rúmgott hol, stofu, tvö svefnherbergi, eldhús, baðherbergi, þvottahús og geymslu innan íbúðar. Ásamt stæði í bílakjallara sem útbúið er með hleðslustöð og 5 fm sérgeymslu.

Nýtt harðparket er á gólfum, ný flísalögn á þvottahúsi, geymslu, forstofu og við útgang á svalir. Eldhúsinnrétting er ný, glæsileg og vönduð. Ný uppþvottavél ásamt spanhelluborði og ofni. Tvöfaldur ísskápur í innréttingu fæst keyptur með ef hugur er á því. Nýir skápar er í forstofu og minna herberginu og ný innrétting í geymslu innaf þvottahúsi.

Ásett verð búseturéttarins er kr. 40.000.000 og mánaðarlegt búsetugjald miðað við 1.júlí er kr.251.542.

Innifalið í mánaðarlegu búsetugjaldi er afborgun skuldabréfa, fasteigna- og holræsagjöld, tryggingar, rekstur húsfélags, viðhaldssjóður og þjónustugjald.

Þeir sem hafa áhuga á að skoða eignina og/eða gera tilboð í búseturéttinn, vinsamlegast hafið samband við búseturéttarhafa, Guðrúnu Hrefnu í síma 696-2555, netfang: [email protected]

Verð: 40.000.000
Stærð: 90 fm
Gata: Grænlandsleið 39 eh.
Póstnúmer: 113 Reykjavík
Fastanúmer: 226-3214
Tilboðsfrestur: þriðjudagur 4.ágúst 2026, kl.12.00