Til sölu er búseturéttur á Grænlandsleið 39 í Grafarholti. Falleg, björt og rúmgóð 89,9 fm íbúð á neðri hæð í húsi byggðu árið 2003. Góð eign sem hefur fengið gott viðhald. Íbúðin skiptist í rúmgott hol, stofu, tvö svefnherbergi, eldhús, baðherbergi, þvottahús og geymslu innan íbúðar. Góð lokuð verönd með fallegu útsýni. Stæði í bílakjallara fylgir og þar er 4,3 fm sérgeymsla.
Íbúðin getur verið laus 15.september nk.
Ásett verð búseturéttarins er kr. 35.000.000 og mánaðarlegt búsetugjald miðað við 1.september er kr.229.214.
Innifalið í mánaðarlegu búsetugjaldi er afborgun skuldabréfa, fasteigna- og holræsagjöld, tryggingar, rekstur húsfélags, viðhaldssjóður og þjónustugjald.
Þeir sem hafa áhuga á að skoða eignina og/eða gera tilboð í búseturéttinn, vinsamlegast hafið samband við skrifstofu Búmanna í síma 552-5644 eða í gegnum netfangið [email protected]

Verð: 35.000.000
Stærð: 94,2 fm
Gata: Grænlandsleið 39 nh.
Póstnúmer: 113 Reykjavík
Fastanúmer: 226-3213
Tilboðsfrestur: miðvikudagur 9.september 2026, kl.12.00













