Til sölu er búseturéttur í Hvammsgötu 18 í Vogum. Um er að ræða fallegt og snyrtilegt parhús, byggt árið 2003. Eignin er 114,2 fm, húsið 89,6 fm og bílskúr 24,6 fm og skiptist í forstofu, þvottahús, baðherbergi, tvö svefnherbergi, stofu og eldhús. Húsið er innst í götunni með fallegu sjávarútsýni.
Ásett verð búseturéttarins er kr. 23.000.000 og mánaðarlegt búsetugjald miðað við 1.ágúst er kr.234.101.
Innifalið í mánaðarlegu búsetugjaldi er afborgun skuldabréfa, fasteigna- og holræsagjöld, tryggingar, viðhaldssjóður og þjónustugjald.
Þeir sem hafa áhuga á að skoða eignina og/eða gera tilboð í búseturéttinn, vinsamlegast hafið samband við skrifstofu Búmanna í síma 552-5644 eða í gegnum netfangið [email protected]

Verð: 23.000.000
Stærð: 114,2 fm
Gata: Hvammsgata 18
Póstnúmer: 190 Vogar
Fastanúmer: 226-2386










