Til sölu er búseturéttur í Kjóalandi 7 í Garði. Um er að ræða snyrtilegt raðhús byggt árið 2008 á einni hæð með afgirtum garði og kofa. Íbúðin er 89,7 fm og bílskúr 34,8 fm eða samanlagt 124,5 fm. Eignin skiptist í forstofu með tvöföldum fataskáp, stofa, eldhús, 2 svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús. Úr þvottahúsinu er innangengt í bílskúrinn.
Ásett verð búseturéttarins er kr. 24.000.000 og mánaðarlegt búsetugjald miðað við 1.ágúst er kr.275.916.
Innifalið í mánaðarlegu búsetugjaldi er afborgun skuldabréfa, fasteigna- og holræsagjöld, tryggingar, rekstur húsfélags, viðhaldssjóður og þjónustugjald.
Þeir sem hafa áhuga á að skoða eignina og/eða gera tilboð í búseturéttinn, vinsamlegast hafið samband við skrifstofu Búmanna í síma 552-5644 eða í gegnum netfangið [email protected]

Verð: 24.000.000
Stærð: 124,5 fm
Gata: Kjóaland 7
Póstnúmer: 251 Garður
Fastanúmer: 230-2578































