Til sölu er búseturéttur í Kríulandi 15 í Garði. Um er að ræða rúmgott 120,3 fm parhús byggt árið 2001, björt eign. Húsið 89,7 fm, skiptist í forstofu, eldhús, stofu, borðstofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús. Bílskúr er 30,6 fm.
Eignin er laus.
Ásett verð búseturéttarins er kr. 22.000.000 og mánaðarlegt búsetugjald miðað við 1.september er kr.190.380.
Innifalið í mánaðarlegu búsetugjaldi er afborgun skuldabréfa, fasteigna- og holræsagjöld, tryggingar, viðhaldssjóður og þjónustugjald.
Þeir sem hafa áhuga á að skoða eignina og/eða gera tilboð í búseturéttinn, vinsamlegast hafið samband við skrifstofu Búmanna í síma 552-5644 eða í gegnum netfangið [email protected]

Verð: 22.000.000
Stærð: 120,3 fm
Gata: Kríuland 15
Póstnúmer: 250 Suðurnesjabær
Fastanúmer: 225-4475


















