Akureyri Lindasíða 13

Lindasíða 13


Category: .
Description

Til sölu er búseturéttur að Lindasíðu 13 á Akureyri. Um er að ræða góða 94,2 fm raðhúsaíbúð á einni hæð, framan við húsið er malbikað bílaplan f.2bíla, steypt stétt, steypt sorpskýli og nettur sólpallur við bakhlið hússins er einnig steyptur.

Eignin skiptist í forstofu, 2 svefnherbergi, eldhús, stofu, geymslu (herbergi), baðherbergi og þvottahús. Á gólfum í alrými og herbergjum er gott eikarparket, innréttingar allar úr spónlagðri eik og eru í góðu ástandi.

Ásett verð búseturéttarins er kr.24.900.000 og mánaðarlegt búsetugjald miðað við 1.júní er kr.192.977.

Innifalið í mánaðarlegu búsetugjaldi er afborgun skuldabréfa, fasteigna- og holræsagjöld, tryggingar, viðhaldssjóður og þjónustugjald.

Þeir sem hafa áhuga á að skoða eignina og/eða gera tilboð í búseturéttinn, vinsamlegast hafið samband við skrifstofu Búmanna í síma 552-5644 eða í gegnum netfangið [email protected]

Verð: 24.900.000
Stærð: 94,2 fm
Gata: Lindasíða 13
Póstnúmer: 603 Akureyri
Fastanúmer: 226-4501
Tilboðsfrestur: föstudagurinn 27.júní 2025, kl.12.00