Suðurnesjabær Lóuland 3

Lóuland 3


Category: .
Description

Til sölu er búseturéttur að Lóulandi 3 í Garðinum. Um er að ræða fallegt og rúmgott endaraðhús, byggt árið 2003, snyrtileg og björt eign. Íbúðin er 90 fm og skiptist í forstofu, eldhús, stofu, borðstofu, tvö herbergi, baðherbergi og þvottahús. Bílskúrinn er 31 fm með herbergi innaf.

Ásett verð búseturéttarins er kr.25.000.000 og mánaðarlegt búsetugjald miðað við 1.október er kr.161.980.

Innifalið í mánaðarlegu búsetugjaldi er afborgun skuldabréfa, fasteigna- og holræsagjöld, tryggingar, viðhaldssjóður og þjónustugjald.

Þeir sem hafa áhuga á að skoða eignina og/eða gera tilboð í búseturéttinn, vinsamlegast hafið samband við skrifstofu Búmanna í síma 552-5644 eða í gegnum netfangið [email protected]

Eignin er laus 15.desember nk.

Verð: 25.000.000
Stærð: 121 fm
Gata: Lóuland 3
Póstnúmer: 250 Garði
Byggingarár: 2003
Bílskúr:
Fastanúmer: 226-5107
Tilboðsfrestur: Miðvikudagurinn 16.október kl.12.00