Til sölu er búseturéttur í Prestastíg 9 íbúð 402 í Grafarholti. Snyrtileg og björt 81,5 fm íbúð á 4.hæð í lyftuhúsi byggðu árið 2002. Upprunaleg en vel um gengin íbúð með útsýni. Eignin skiptist í forstofu, stofu, eldhús, svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymslu innan íbúðar. Bílastæði í bílakjallara fylgir.
Eignin er laus 1.maí nk.
Ásett verð búseturéttarins er kr. 25.000.000 og mánaðarlegt búsetugjald miðað við 1 mars er kr.194.095.
Innifalið í mánaðarlegu búsetugjaldi er afborgun skuldabréfa, fasteigna- og holræsagjöld, tryggingar, rekstur húsfélags, viðhaldssjóður og þjónustugjald.
Þeir sem hafa áhuga á að skoða eignina og/eða gera tilboð í búseturéttinn, vinsamlegast hafið samband við skrifstofu Búmanna í síma 552-5644 eða í gegnum netfangið [email protected]





















