Til sölu er búseturéttur í Stekkjargötu 21 í Reykjanesbæ. Um er að ræða fallegt og rúmgott 135,3 fm parhús byggt árið 2006, snyrtileg eign. Íbúðin er 105,7 fm og skiptist í forstofu, eldhús, stofu, sólstofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús og 30 fm bílskúr. Aukaherbergi hefur verið útbúið innaf bílskúrnum.
Afhending eignar eftir samkomulagi.
Ásett verð búseturéttarins er kr. 32.000.000 og mánaðarlegt búsetugjald miðað við 1 apríl er kr.272.466.
Innifalið í mánaðarlegu búsetugjaldi er afborgun skuldabréfa, fasteigna- og holræsagjöld, tryggingar, rekstur húsfélags, viðhaldssjóður og þjónustugjald.
Þeir sem hafa áhuga á að skoða eignina og/eða gera tilboð í búseturéttinn, vinsamlegast hafið samband við skrifstofu Búmanna í síma 552-5644 eða í gegnum netfangið [email protected]
Verð: 32.000.000
Stærð: 135,3 fm
Gata: Stekkjargata 21
Póstnúmer: 260 Reykjanesbær
Fastanúmer: 228-6367