Til sölu er búseturéttur í Stekkjargötu 29 í Reykjanesbæ. Fallegt, bjart og rúmgott 135 fm parhús byggt árið 2006, snyrtileg eign. Íbúðin er 105 fm og skiptist í forstofu, stofu, eldhús, sólstofu, sjónvarpsrými, svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús. Bílskúrinn er 30 fm og innaf honum er geymsla/herbergi.
Ásett verð búseturéttarins er kr. 31.000.000 og mánaðarlegt búsetugjald miðað við 1 mars er kr.256.577.
Innifalið í mánaðarlegu búsetugjaldi er afborgun skuldabréfa, fasteigna- og holræsagjöld, tryggingar, rekstur húsfélags, viðhaldssjóður og þjónustugjald.
Þeir sem hafa áhuga á að skoða eignina og/eða gera tilboð í búseturéttinn, vinsamlegast hafið samband við skrifstofu Búmanna í síma 552-5644 eða í gegnum netfangið [email protected]

Verð: 31.000.000
Stærð: 135 fm
Gata: Stekkjargata 29
Póstnúmer: 260 Reykjanesbær
Fastanúmer: 228-6375
