Til sölu er búseturéttur í Stekkjargötu 9 í Reykjanesbæ. Bjart, fallegt og rúmgott 135,3 fm parhús, byggt árið 2006, mjög snyrtileg eign. Húsið skiptist í forstofu, eldhús, stofu, sólstofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og bílskúr. Aukaherbergi hefur verið útbúið innaf bílskúrnum.
Afhending er 1.júní eða samkomulag.
Ásett verð búseturéttarins er kr. 32.000.000 og mánaðarlegt búsetugjald miðað við 1.maí er kr.275.044.
Innifalið í mánaðarlegu búsetugjaldi er afborgun skuldabréfa, fasteigna- og holræsagjöld, tryggingar, rekstur húsfélags, viðhaldssjóður og þjónustugjald.
Þeir sem hafa áhuga á að skoða eignina og/eða gera tilboð í búseturéttinn, vinsamlegast hafið samband við skrifstofu Búmanna í síma 552-5644 eða í gegnum netfangið [email protected].
Verð: 32.000.000
Stærð: 135,3 fm
Gata: Stekkjargata 9
Póstnúmer: 260 Reykjanesbær
Fastanúmer: 228-6355