Ábending um rakamyndun í íbúðum

Vetraraðstæður og rakamyndun

Frostið og rakinn

Það hefur borið við að  raki myndast í gluggum þegar mikið frost er úti

Hér að neðan eru nokkur ráð til að minnka rakann:

·        Lofta vel út daglega, stuttan tíma í senn

·        Passa að hiti sé á öllum ofnum- þeir eiga að vera heitir efst en kaldir neðst

·        Á mjög köldum dögum getur þurft að hækka á ofnum þannig að þeir séu ekki alveg kaldir á neðan en muna að lækka aftur, annars fáum við háan reikning frá hitaveitunni.

·        Huga að húsgögnum og gardínum, ekki hylja ofna með gardínum og húsgögnum draga gardínur frá gluggum á morgnanna til að auka loftflæði um gluggana

·        Hafa innihurðir opnar  til að auka loftflæði um íbúðina

·        Lofta vel um þvottahús þegar verið er að þurrka þvott, koma rakanum út

·        Stærri  fjölskyldur þ.e. þar sem margir eru í heimili gefa frá sér aukinn raka, þar þarf að huga vel að loftræstingu

·        Lofta vel eftir sturtu og böð

·        Þvottur sem þurrkaður er á ofnum eykur mjög á rakstigið í íbúðinni

·        Eingöngu nota þurrkara með rakþétti eða sem blæs rakanum út úr íbúðinni

Lesa meira