Aðalfundur Búmanna hsf., verður haldinn þriðjudaginn 15. júní 2021 og hefst hann kl. 14.00 í Gullteig á Grand Hótel við Sigtún í Reykjavík.
Í samræmi við 13. gr. samþykkta Búmanna verður félagsmönnum sem búa í meira 200 km. akstursfjarlægð frá tilgreindum aðalfundarstað gefinn kostur á að mæta og taka þátt í aðalfundinum í gegnum fjarfundarbúnað á fjarfundarstað.
Fjarfundarstaður verður á Hótel Kea, Hafnarstræti 87-89 á Akureyri. Nánar vísast til reglna um rafræna þátttöku á félagsfundum Búmanna sem eru aðgengilegar á vef Búmanna www.bumenn.is.
Innskráning á fundinn á aðalfundarstað og fjarfundarstað hefst kl. 13.00 og eru félagsmenn hvattir til að mæta tímanlega til skráningar.
Aðalfundurinn er opinn öllum félagsmönnum Búmanna og hafa þeir málfrelsi, tillögurétt og atkvæðisrétt á fundinum. Hver félagsmaður má fara með umboð frá einum öðrum félagsmanni.
Framboðsfrestur til stjórnarkjörs er til þriðjudagsins 1. júní 2021. Framboðum skal skila á netfangið [email protected].
Dagskrá aðalfundar Búmanna er í samræmi við samþykktir félagsins sem hér segir:
- Setning aðalfundar og kosning fundarstjóra og fundarritara.
- Skýrsla stjórnar fyrir starfsárin 2019 og 2020 og umræður um hana.
- Framlagning ársreikninga fyrir starfsárin 2019 og 2020, umræða og afgreiðsla.
- Ákvörðun um hvernig ráðstafa skuli rekstrarafgangi eða bregðast við ef tap verður á rekstri félagsins.
- Kynning á ákvörðun stjórnar um fjárhæð félagsgjalda, inntökugjalda, þjónustugjalda og annarra gjalda sem ákveðin er af stjórn félagsins samkvæmt samþykktum þess.
- Ákvörðun gjalds í viðhaldssjóð félagsins.
- Ákvörðun um framlag til varasjóðs félagsins.
- Tillögur til breytinga á samþykktum félagsins.
- Kosning formanns til eins árs.
- Kosning tveggja meðstjórnenda til tveggja ára.
- Kosning þriggja varamanna í stjórn til eins árs.
- Ákvörðun um þóknun stjórnarmanna.
- Kosning löggilts endurskoðanda til eins árs og tveggja skoðunarmanna og eins til vara, alla til eins árs.
- Kosning þriggja manna kjörnefndar.
- Kynning á úttekt á fjárhag, skuldbindingum og starfsemi Búmanna hsf. sbr. 1. mgr. 6.gr.a. í lögum um húsnæðissamvinnufélög nr. 66/2003 með síðari breytingum.
- Önnur mál.