Aðalfundur Búmanna hsf. 2022

Aðalfundur Búmanna hsf., verður haldinn þriðjudaginn 17. maí  2022 og hefst hann kl. 14.00 í Gullteig á Grand Hótel við Sigtún í Reykjavík og streymt þaðan  í Múlaberg á Hótel KEA, Hafnarstræti 87-89 á Akureyri.

Í samræmi við 13. gr. samþykkta Búmanna verður félagsmönnum sem búa í meira en 200 km. akstursfjarlægð frá tilgreindum aðalfundarstað gefinn kostur á að mæta og taka þátt í aðalfundinum í gegnum fjarfundarbúnað á fjarfundarstað.

Fjarfundarstaður verður í Múlaberg á Hótel KEA, Hafnarstræti 87-89 á Akureyri. Nánar vísast til reglna um rafræna þátttöku á félagsfundum Búmanna sem eru aðgengilegar á vef Búmanna www.bumenn.is.

Innskráning á fundinn á aðalfundarstað og fjarfundarstað hefst kl. 13.00 og eru félagsmenn hvattir til að mæta tímanlega til skráningar.

Aðalfundurinn er opinn öllum félagsmönnum Búmanna og hafa þeir málfrelsi, tillögurétt og atkvæðisrétt á fundinum. Hver félagsmaður má fara með umboð frá einum öðrum félagsmanni.

Framboðsfrestur til stjórnarkjörs er til þriðjudagsins 3. maí 2022. Samkvæmt samþykktum Búmanna á að kjósa um formann félagsins, tvo stjórnarmenn og þrjá varamenn í stjórn.  Framboðum skal skila á netfangið [email protected]

Dagskrá fundarins er í samræmi við samþykktir félagsins sem hér segir.

  1. Setning aðalfundar og kosning fundarstjóra og fundarritara.
  2. Skýrsla stjórnar fyrir liðið starfsár og umræður um hana.
  3. Framlagning ársreikninga, umræða og afgreiðsla.
  4. Ákvörðun um hvernig ráðstafa skuli rekstrarafgangi eða bregðast við ef tap verður á rekstri félagsins.
  5. Kynning á ákvörðun stjórnar um fjárhæð félagsgjalda, inntökugjalda, þjónustugjalda og annarra gjalda sem ákveðin eru af stjórn félagsins samkvæmt samþykktum þess.
  6. Ákvörðun gjalds í viðhaldssjóð félagsins.
  7. Ákvörðun um framlag til varasjóðs félagsins.
  8. Tillögur til breytinga á samþykktum félagsins.
  9. Kosning formanns til eins árs.
  10. Kosning tveggja meðstjórnenda til tveggja ára.
  11. Kosning þriggja varamanna í stjórn til eins árs.
  12. Ákvörðun um þóknun stjórnarmanna.
  13. Kosning löggilts endurskoðanda til eins árs og tveggja skoðunarmanna og eins til vara, alla til eins árs.
  14. Kosning þriggja manna kjörnefndar
  15. Undir þessum lið verða flutt þrjú stutt erindi.
  16. Tryggingar vegna altjóns, vegna sólpalla og svalalokana og fleira. Kristinn Bjarnason, lögmaður Búmanna
  17. Hvernig hægt er að bæta gæði innilofts í íbúðum. Marteinn Jónsson, verkfræðingur
  18. Rafbílavæðing hjá Búmönnum. Daði Baldur Ottóson
  19. Önnur mál

Lesa meira