Áskorun frá búsetufélögum Búmanna

�         Hér á eftir fer hugmynd að áskorun til Alþingis og ríkisstjórnar

�         Hugmyndin er að búsetafélögin sendi þessa áskorun til þingmanna síns kjördæmis og ráðherra ríkisstjórnarinnar

�         Aðalfundur búsetufélagsins _______________  haldinn ___. maí 2014 tekur undir þá skoðun að leiðrétta beri höfuðstól fasteignaveðlána, sem ríkisstjórnin ætlar að hrinda í framkvæmd.

�         Aðalfundur búsetufélagsins ______________ mótmælir því hins vegar harðlega að eigendur búseturéttar í Búmannaíbúðum séu ekki með í þeim aðgerðum.

�         Aðalfundur búsetufélagsins _________________ bendir á að búseturéttur er form á séreign. Eigendur búseturéttar í Búmannaíbúðum fá greiddar vaxtabætur eins og aðrir íbúðaeigendur, sem falla undir þau skilyrði.

�         Staða skuldabréfs hjá Íbúðalánasjóði er fært á skattframtal viðkomandi íbúa í Búmannaíbúð.  Litið er á þetta sem hefðbundið verðtryggt fasteignalán, sem tekur sömu breytingum mánaðarlega og öll önnur fasteignaveðlán Íbúðalánasjóðs.

�         Aðalfundur búsetufélagsins ______________ fagnar hugmyndum Eyglóar Harðardóttur, félagsmálaráðherra, um fjölbreyttara val á húsnæðismarkaði m.a. með leiguíbúðum og búseturéttaríbúðum.

�         Eigi það að gerast gengur ekki að ætla að neita núverandi eigendum búseturéttar í Búmönnum um sambærilega leiðréttingu og aðrir íbúðaeigendur eiga að fá.

�         Almennar skuldaleiðréttingar hljóta að eiga að ganga til allra, sem skulda fasteignaveðlán.

�         Aðalfundur búsetufélagsins ______________ treystir því að stjórnvöld sjá til þess að Búmenn fái sömu leiðréttingu og aðrir.

Lesa meira