Auglýsing vegna félagsfundar-aukaaðalfundar 24. nóv. n.k.

FÉLAGSFUNDUR – AUKAAÐALFUNDUR BÚMANNA HSF.

Félagsfundur og aukaaðalfundur Búmanna hsf. verður haldinn mánudaginn 24. nóvember 2025 og hefst fundurinn kl. 14.00 í HvammI á Hótel Reykjavík Grand við Sigtún 28 í Reykjavík (aðalfundarstaður) og verður streymt þaðan í Múlaberg á Hótel KEA, Hafnarstræti 87-89 á Akureyri (fjarfundarstaður).

Í samræmi við 13. gr. samþykkta Búmanna hsf. verður félagsmönnum sem búa í meira en 200 km. akstursfjarlægð frá tilgreindum aðalfundarstað gefinn kostur á að mæta og taka þátt í aðalfundinum í gegnum fjarfundarbúnað á fjarfundarstað.
Nánar vísast til reglna um rafræna þátttöku á félagsfundum Búmanna hsf. sem eru aðgengilegar á vef Búmanna www.bumenn.is.

Innskráning á fundinn á aðalfundarstað og fjarfundarstað hefst kl. 13.00 og eru félagsmenn hvattir til að mæta tímanlega til skráningar. Fundurinn er opinn öllum félagsmönnum Búmanna hsf.  og hafa þeir málfrelsi, tillögurétt og atkvæðisrétt á fundinum. Hver félagsmaður má fara með umboð frá einum öðrum félagsmanni.

Dagskrá félagsfundar og aukaaðalfundar Búmanna hsf. er sem hér segir:

  1. Setning fundar og kosning fundarstjóra og fundarritara.
  2. Samningur um að húsnæðissamvinnufélagið Elliði hsf. í Þorlákshöfn sameinist Búmönnum hsf. lagður fyrir félagsfund Búmanna hsf. til samþykktar. Gögn vegna samrunans verða aðgengileg félagsmönnum Búmanna hsf.  á skrifstofu félagsins að Lágmúla 7, 5. hæð, 108 Reykjavík frá og með 17. nóvember 2025.

Umræður og atkvæðagreiðsla.

3. Tillaga um nýtt ákvæði í samþykktir Búmanna hsf.

Á grundvelli samrunasamnings Búmanna hsf. og Elliða hsf.  samþykkti stjórn Búmanna hsf., á stjórnarfundi sem haldinn var þann 23. október 2025, að gera tillögu að eftirfarandi nýju ákvæði í samþykktir Búmanna hsf. sem verði 34. gr. þeirra:

  „34. gr.

Samruni.

 

Við samruna Elliða hsf. í Búmenn hsf. skulu félagsaðilar þess fyrrnefnda eiga rétt á að verða félagsaðilar í því síðarnefnda og fá félagsnúmer í því félagi í sömu röð og þeir höfðu í Elliða hsf.  

Þeir fyrrum félagsaðilar Elliða hsf. sem verða félagsaðilar í Búmönnum hsf.  í tengslum við samruna félaganna og eru ekki núverandi búseturéttarhafar í íbúðum við Mánabraut 1-16 og Sunnubraut 1-8, Þorlákshöfn  (hér eftir Elliðaíbúðir) skulu njóta forkaupsréttar til kaupa á búseturétti í Elliðaíbúðum til ársloka 2030 í samræmi við félagsnúmeraröð þeirra eins og hún var í félagaskrá Elliða hsf.  þannig að lægra númer gengur fyrir hærra ef á reynir. Forkaupsréttur þessi verður einungis virkur bjóði viðkomandi félagsmaður í búseturétt í Elliðaíbúðum.  

Í samræmi við skipulagsskilmála Elliðaíbúða skal einungis 60 ára eða eldri vera heimilt að eignast búseturétt í þeim íbúðum. 

Um ráðstöfun, kaup og sölu búseturéttar í Elliðaíbúðum gilda að öðru leyti ákvæði samþykkta Búmanna hsf.  og söluskilmálar sem settir eru á grundvelli þeirra.“

Umræður og atkvæðagreiðsla.

  1.  Fundarslit